Jæja mýsnar
mínar...latasti bloggarinn í bransanum er mættur hérna svona
líka hress á ísköldum fimmtudegi, það er skítakuldi hérna fyrir
norðan og það er svo mikið að gera í skólanum að það er bara
ógeð! En ég nenni nú ekki að vera að röfla í þessum pistli, þá
myndi enginn nenna að lesa þetta.
Það eru nú reyndar tvær
hefðardömur búnar að kitla mig, ekki þó í bókstalegri merkingu
en..ég bara nenni ekki að standa í þessu rugli, og ætla þess vegna
að vera óþekk og sleppa því. Þið (Sigrún og Nanna) meigið alveg
koma og kittlað mig eða gera eitthvað enn verra ef að þið eruð MJÖG
reyðar! 
Hvað hefur drifið á daga mína síðustu
vikurnar?? Tja..ég er
barasta búin að vera á fullu í verkefnavinnum daginn út og inn og
stefnir allt í að það verði þannig þangað til að ég kemst í
langþráð jólafrí þann 21.desember, já þið lásuð ekki vittlaust,
21.des er köld og sorgleg staðreynd, maður getur bara þakkað fyrir
að ná heim fyrir aðfangadag, JEREMÍAS
The schoolmaster er ekki
alveg að gera sig. Svo var nú skruppið í vetrarfrí heim í Hólm um
þarsíðustu helgi og það var auðvitað bara næs. Bara chillað og
djammað auðvitað smá líka
J
Um helgina er það svo bara
“Sódóóóómmaaaaa” því að Sálin ætlar að heyðra norðanmenn með komu
sinni og ég held að það séu bara allir að fara í Sjallann. Það
verður sko heldur betur slett úr klaufunum, alveg kominn tími á
það. Laug.kvöldið byrjar í partýi hjá aðalbyttunum þeim Önnu Lóu og
Binnu, þetta á víst að verða alveg svaðalegt og svo ætlum við að
kíkja við í innflutningspartý hjá Bjarney skvís og rústa nýju
(örugglega fínu) íbúðinni hennar
Svo er það bara Sjallinn þar
sem það verður dansað af sér bossann. Ég er að spá í að spara mig
bara ekkert...þar sem þetta er sennilega síðasta djamm fyrir jól.
Hlakka svo til.
Það er harkan sjö í
Brekkuselinu núna..ekki einn nammi né gossopi er leyfður því að það
styttist óðum í árshátíð MA og þá verða allir að vera fit og flott.
Mataræðið er álíka spennandi og verkefnavinnan í skólanum...það
samanstendur nokkurnveginn af hafragraut, skyrboozt, Daloon rúllum,
hrökkbrauði, skyrdrykkjum, ávöxtum og grænmeti. En þetta er bara
fínt..manni líður svo miklu betur þegar að maður borðar bara
hollt.
Við Drífus fórum í sund áðan
og komum svo heim í sjónvarpsmaraþon með Siggu, Bachelorinn,
Ástarfleyið og Silvía Snillingur Nótt. Þvílíkir leikhæfileikar sem
manneskjan hefur!
Endum þetta á nokkrum
góðum frá Tyrklandi...mmmm



I fancy je all my
fellows
Hittumst heil
olGa